Sem skútusiglari verð ég að hrósa því framtaki að hafnaraðstaða fyrir skemmtibáta verði bætt verulega í Flatey á Breiðafirði.
Við þetta má þó bæta að með því að gera grjótgarð milli Hafnareyjar og Flateyjar þá mundi myndast þar stórgott bátalægi að auki.
Fáir  eða engir staðir eru skemmtilegri að heimsækja en Flatey og reyndar er endalaust hægt að flakka um Breiðafjörðinn á bátum.
Þingmaður sem
þáði 4 miljónir frá Baugi er talin vera sá fulltrúi sem er verðugastur
til að gæta skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Steinunni er svo umhugað um
skýrsluna að hún hafnar fulltrúum frá Evu Joly til að sitja fundi með
nefndinni.
Það hafa margir löglærðir menn sem mark er á takandi bent á að lánin séu ólögleg.
Það hefur enginn sem mark er á takandi mótmælt því.
Það skyldi þó ekki vera vegna þess að sannleikurinn er sá að lánin eru ólögleg!
Það er í raun ekkert annað að gera, en að hætta að taka þátt í glæpnum, og hætta að borga.
Því miður sé ég mér ekki fært af siðferðislegum ástæðum að halda áfram að blogga á mbl.is
Ég mun birtast á öðrum vettvangi fljótlega.
Þakkir fyrir samskiptin og innlitin.
Góðar stundir.
Baldvin Björgvinsson
1. Ég versla ekki við þjófa. Þess vegna kaupi ég aðeins eldsneyti af Atlantsolíu. Ég hef ekki og mun ekki fyrirgefa hinum olíufélögunum það samráð sem þau höfðu um verðlagningu.
2. Atlantsolía er alltaf með lægsta verðið. Með dælulyklinum lækkar það enn meir og með því að vera félagi í FÍB lækkar verðið meira en nokkurt annað félag hefur boðið mér.
3. Atlantsolía hefur alla tíð frá því að fyrirtækið kom inn á markaðinn sýnt það í verki að taka þátt í virkri samkeppni og eru oft fyrstir til að lækka verð meðan aðrir bíða.
Atlantsolía hefur með öðrum orðum sýnt heiðarlega viðskiptahætti og samkeppni í verki.
Það má sannarlega segja að ríkisstjórn Jóhönnu hafi brugðið upp GJALDBORG um heimilin.
Skjaldborgin er hins vegar um útrásarhálfvitana og allt það þjófapakk.
Það er kominn tími til að fást við almennar skuldir fólks í landinu eins og það hafi orðið hér hamfarir og takast þurfi á við þær sem slíkar.
Stór hluti heimila í landinu þolir ekki meira, á rétt fyrir þjófnaði bankanna um hver mánaðarmót.
Sparnaðurinn er farinn, brunninn upp í fasteignakaupum eða afborgunum varglána.
Skuldarar þurfa sjálfir að lögsækja bankana, sem voru einkafyrirtæki, vegna ólöglegra vaxta.
Til hvers er löggæslan í þessu landi?
Hverjir takast á við skuldavanda heimilanna, eru það þeir sem þjóðin kaus til þess í vor? Stéttarfélög launafólks? ASÍ? Nei.
Það eru sjálfboðaliðasamtökin Hagsmunasamtök heimilanna.
Svei þeim vesalingum sem voru valdir til að bjarga málunum og þeim sem eru á launum hjá launþegum þessa lands við að gæta hagsmuna þeirra.
Sjálfur geri ég fastlega ráð fyrir að það komi ekkert annað frá ríkisstjórninni í þetta skiptið en enn ein lengingin í hengingarólinni.
Það er nú alveg ljóst hvar ég vildi sjá skorið niður í ríkisútgjöldum. Einn og hálfur milljarður sem fer að miklu leiti í gjaldeyri
Það er verið að skera niður um sjö milljarða í heilbrigðiskerfinu, en þar viljum við alls ekki skera niður og þaðan af síður í menntakerfinu.
Það er alveg ljóst að sendiráðið í Japan verður að rökstyðja mál sitt mjög vel ef það á ekki hreinlega að leggja það niður. Það sama á við um önnur sendiráð.
Það er löngu kominn tími til að segja IMF og öllu hinu liðinu að troða þessu dollaradrasli þangað sem sólin skín mjög sjaldan.
IMF er ekki Rauði krossinn.
IMF er engöngu til að ljúka við að leggja Ísland í rúst til að komast yfir auðlindir þjóðarinnar, olíuna, orkuna og hreina vatnið ásamt einni stærstu matarkistu heimsins.
Þetta er undarlega aulaleg fyrirsögn hjá fréttaritara.
Um það bil helmingur heimila í landinu stefnir í gjaldþrot.
Um það bil ein fjölskylda af hverjum þrem verður gjaldþrota innan örfárra mánaða.
30% eru tilbúnir í átökin það gerir um það bil 30 þúsund fjölskyldur eða ca. 60 - 100 þúsund manns.
Þessi hópur sem er tilbúinn að berjast fyrir réttindum sínum með verkföllum og greiðsluverkföllum ef með þarf fer ekki minnkandi.
Það er alveg sama hvaða hræðsluáróðri og rangfærslum er haldið fram. Leiðrétting á skuldum mun fara fram með góðu eða illu.
Tími þvættingsins er liðinn.
Það mun vera staðreynd að íslendingar skammast sín meira fyirr að tala um fjármál sín en kynlíf.
Þekkið þið einhvern sem talar opinskátt um fjármál sín?
Þekkið þið ekki fleiri sem eru til í að ræða kynlífið, jafnvel sitt eigið?
Þarf ekki fyrst og fremst hispurslausa umræðu um fjármál heimilanna?
Hvernig væri að IMF og nýlenduliðið tækju þennan þrælasamning og træðu honum einhversstaðar þar sem sólin skín mjög sjaldan.
Pesónulega hef ég engan áhuga á að borga skuldir bjögganna og hinna útúrspíttuðu einkasnekkju-djammaranna og leyfa þeim að sitja uppi með hagnaðinn.
Ég hef sagt það áður og segi það enn að þeir sem vilja endilega borga skuldir eigenda Landsbankans en gefa þeim hagnaðinn,  ERU HÁLFVITAR!
Jón Jósef hafði gagnagrunninn tilbúinn árið 2007.
Hann bauð mörgum stofnunum innan stjórnsýslunnar grunninn til  ÓKEYPIS AFNOTA árið 2007 - 2008.
ENGIN STOFNUN INNAN STJÓRNSÝSLUNNAR HAFÐI ÁHUGA Á GRUNNINUM
Ekki fjármálaeftirlitið, seðlabankinn, lögreglan, skatturinn eða nokkur einasti aðili.
Nú hefur verið reynt að koma í veg fyrir að síðustu gögnin verði færð inn í grunninn.
Hvað segir þetta okkur?
Sem betur fer tókst ekki að fá Persónuvernd með í að hylma yfir spillingaróþverrann.
Það má með sanni segja að ef mann vantar frumlega hugmynd þá er best að leita til barnanna sem sjá hlutina í réttu ljósi. Þau sjá hlutina gjarnan þannig að það er ekki búið að fastmóta hug þeirra hvernig þau eiga að hugsa.
Uppfinningarmenn á ungum aldri eru örugg uppspretta frumlegra hugmynda sem aldrei kæmu fram í kolli þeirra sem eldri eru.
Það má sjá af nöfnum uppfinninganna, þótt nánari lýsingar eða myndir vanti, að ýmislegt frumlegt hefur komið fram sem sumt á sér leið inn í framtíðina sem sjálfsagðir hlutir í daglega lífinu.