Auðvitað vilja fáir vera á þessum markaði

Það segir sig alveg sjálft að það vilja sem fæstir vera á íslenskum leigumarkaði, því hann er algjört helvíti.

Leiguverð fáránlega hátt og nákvæmlega ekkert öryggi fyrir leigjendur sem meiga búast við að vera hent út hvenær sem er.

Þetta eru bara sjálfsögð sannindi.

Það er leigumarkaðurinn sjálfur sem er drasl. Ef hann væri í lagi þá væri um það bil 1/3 á leigumarkaði eins og venja er í sambærilegum samfélögum. Annar 1/3 í einhverskonar búseta úrræði. Annar 1/3 í eigin húsnæði.

 


mbl.is Flestir vilja ekki vera á leigumarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenzka viðhorfið

Það er þekkt þetta viðhorf eða "attitude" að um leið og lög eru sett þá kemur fyrst upp í huga Íslendingsins "hvernig komumst við framhjá þessum lögum". Þetta er engin undantekning.

Nú eru heilu skólarnir, væntanlega undir stjórn skólameistara, að reyna að skipuleggja lögbrot í stórum stíl.

Það er ekki hægt að búa til einhverja samninga fyrir fólk til að skrifa undir, og það ætti enginn að taka þátt í slíku, því engir slíkir samningar eru gildir ef landslög segja annað.

Skólameistarar, takið ykkur nú tak og lærið lögin um persónurvernd og takið um það ákvörðun að fara eftir þeim. Það er engin önnur leið í boði.

Þið vitið hve háar sektirnar geta orðið.


mbl.is Skólar herða reglurnar um of
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grímulaus áróður auðvaldsins

Það hefur kannski komið mest á óvart hvað það hefur tekið auðvaldið, sem rekur Morgunblaðið, langan tíma að bregðast við.

En þessi grímulausi áróður auðvaldsins kemur sósíalistum auðvitað ekkert á óvart.

Þegar auðvaldið spyr sósíalismann og hann svarar "ég hef ekkert við þig að tala" þá kemur það ekki heldur á óvart.

Það kemur ekkert á óvart í þessari "frétt" nema helst það hvað kapítalistinn er seinn að bregðast við.

Efling er ekki stéttarfélag kapítalista. Efling er stéttarfélag þeirra lægst launuðu og eiga ekkert sameiginlegt með kapítalistum. Félagar í Eflingu eiga hins vegar allt sameiginlegt með sósíalistum og því er fullkomlega eðlilegt að formaður Eflingar sé yfirlýstur sósíalisti. Það væri hreinlega óeðlilegt ef hann væri eitthvað annað.

Þau lesa ekki moggann, stór hluti þeirra kann ekki einu sinni íslensku, þannig að þessari prentsvertu var algjörlega sóað til einskis. Þau munu ekki lesa þetta blogg mitt heldur, en kapítalistarnir munu gera það og brjálast og ég hlæ.

 


mbl.is Forystan gagnrýnd harðlega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Baldvin Björgvinsson

Höfundur

Baldvin Björgvinsson
Baldvin Björgvinsson

Framhaldsskólakennari. Raffræðingur. Skútusiglari.

Okt. 2018
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • baldvinb launasedill 31des2021
  • heilgrima
  • halfgrima
  • ...jorgvinsson
  • frozenintimebanner.png

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband