VIÐ íslendingar

Fátt fer meira í taugarnar á mér þessa dagana en þegar pólítíkusar og aðrir þeir sem vilja borga skuldir útrásarhálfvitanna með mínum peningum og barnanna minna nota orðið "VIÐ".

Við íslendingar, bla, bla, bla, erum ábyrgir, bla, bla, bla. Svo fylgir einhver þvættingur um "okkur" íslendinga og svo framvegis.

Staðreyndin er að í þessu máli er ekkert VIÐ. Við, í minni fjölskyldu tókum ekki þátt í þessu rugli. Við, berum ekki ábyrgð á Sigurjóni, Jóni, Friðrik, Björgólfi eða einum eða neinum þeirra.

Ég frábið mér að allir íslendingar séu flokkaðir í sama flokk og kallaðir alkar eða heróínsjúklingar sem þurfi að fara í meðferð. Við sem engan þátt tókum og enga raunverulega ábyrgð berum erum ekki "VIÐ ÍSLENDINGAR". Ég hef aldrei kosið Sjálfstæðisflokkinn, Framsókn eða Kommana. Ég hætti stuðningi við Samfylkinguna þegar hún sigldi í kjölfar hinna. Tók ég þó þátt í að búa SF til á sínum tíma.

VIÐ í minni fjölskyldu, hvað þá börnin fædd og ófædd, tókum engan þátt í að gera Lýðveldið Ísland gjaldþrota.

Við erum ekki þeir. Við berum ekki ábyrgð á þeim, EES, ESB, IMF, EDGE, ICESAVE, Kaupþingi, Glitni, Landsbankanum eða öðrum persónulegum ábyrgðum sem við höfum aldrei gengist við.

Ég bið þá sem í hlut eiga hér með formlega að nota ALDREI framar orðið VIÐ í þeim tilgangi að flokka mig og mína með þeim einstaklingum sem ég fyrirlít af heift og viðbjóði. Drulluhalana sem almennt eru kallaðir "Útrásarvíkingar".


mbl.is Ísland – það sem læra má af efnahagshruninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Baldvin

 Ég vona að þú takir það ekki stirt upp þó ég noti bloggið þitt til að koma á framfæri kærum þökkum til Evu Joly, þó hún kannski ekki sjái þær þá eru þær allavega komnar fram.

Eggert Jóhannesson (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 13:26

2 identicon

Langt síðan ég fann fyrir því, að nú verður maður að ganga með veggjum.

Ekki er stoltinu fyrir að fara lengur, að maður sé frá "Sögueyjunni."

Sá tími er liðinn,  sá tími kemur aldrei aftur.

j.a. (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 13:29

3 identicon

Þegar þetta pakk segir "Við", þá eru þeir að meina "Þið skrælingjarnir"
Skrælingjar hafa alltaf þurft að borga fyrir eilituna á íslandi, því meiri skrælingjar því meira er tekið af þeim... aldraðir og öryrkjar liggja sérlega vel við höggi.....
Tími Jóhönnu er komin

DoctorE (IP-tala skráð) 1.8.2009 kl. 13:33

4 Smámynd: ThoR-E

heyr heyr!!

ThoR-E, 1.8.2009 kl. 13:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldvin Björgvinsson

Höfundur

Baldvin Björgvinsson
Baldvin Björgvinsson

Framhaldsskólakennari. Raffræðingur. Skútusiglari.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • baldvinb launasedill 31des2021
  • heilgrima
  • halfgrima
  • ...jorgvinsson
  • frozenintimebanner.png

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 14049

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband