Hvernig væri bara að hlúa betur að öðrum íþróttum?

Persónulega hef ég verulegar efasemdir um snjóframleiðlsu. Allir vita að það er verulegt vandamál með vatn í Bláfjöllum, það er ekki nóg vatn til að koma upp snjógerðargræjum.

Á sama tíma og óheyrilegum fjárhæðum er veitt til skíðasvæðisins í Bláfjöllum eru aðrar íþróttir hreinlega sveltar.

Þetta eru reyndar sumar íþróttir sem þurfa lítið sem ekkert til að blómstra. Ég tiltek sérstaklega sjó og vatnaíþróttir sem ekki þurfa völl, snjógerðarvél eða nokkurn skapaðan hlut annað en sæmilega aðstöðu í landi.

Siglingaíþróttin hefur til dæmis verið látin finna illilega fyrir því undanfarna áratugi. Ylströndin, eins góð og hún er, lokaði aðkomu Siglingafélags Reykjavíkur að sjó. Félagsheimilið var rifið til að rýma fyrir Tónlistarhöll og nú er rætt um að rífa aðstöðuna við Nauthólsvík. Öll loforð um að bæta Siglingafélagi Reykjavíkur aðstöðumissi hafa verið svikin, aftur og aftur.

Hvernig væri bara að hlúa að íþróttum sem hægt er að stunda á íslandi? Kajakklúbburinn hefur óskað eftir aðstöðu við Geldinganes en fengið lítil svör og engin loforð. Það sama gildir um Siglingafélag Reykjavíkur, engin svör fást um varanlega aðstöðu.

Það eru fleiri íþróttir í svipuðum málum og siglingaíþróttirnar, hvernig væri bara að byrja á að hlúa að þeim og geyma snjógerðarbullið?


mbl.is Pólitískur áhugi á snjóframleiðslu fyrir sunnan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Morten Lange

Mikið rétt !

Svo má líka slá margar flugur í einu höggi með því að bæta aðstæður til samgönguhjólreiða. ekki síst á milli sveitarfélaga og hverfa á höfuðborgarsvæðinu.

Aðstæður til hjólreiða má bæta á marga vegu :

  1. Búa til hjólavegi / eða blandaðar göngu- og hjólreiðastíga, en hannaðar með tilliti til hjólreiða á 20 - 50 km hraða.
  2. Lækka hraða bíla á tengivegi sem geta þannig orðið ákjósanlegri til hjólreiða fyrir "óvana".
  3. Kennsla í Hjólafærni eykur sjálfstraust, skilvirkni og öryggi. Sjá t.d. http://hjolafaerni.is/index.php?option=com_content&view=article&id=50&Itemid=57
  4. Hvatningur til hjólreiða fjölgar hjólreiðamönnum og bæti öryggi og setur af stað jákvæðu ferli ( öfugt við vitahring.
  5. Til eru dæmi um tvo vinnustaði ( amk ) á höfuðborgarsvæðinu sem greiða þá sem ekki nota bílastæði, þar með talið fólki sem hjólar til vinnu pening sem samsvari strætókorti. 
  6. Betri aðstæður til að geyma reiðhjól við vinnustaði, og til að þvo sér /fara í sturtu fyrir þá sem taka á því á hjólinu.  Borgar sér fyrir vinnustaðinn, því veikindaleyfisdögum fækki með batnandi heilsu starfsmanna. 
  7. etc

Morten Lange, 4.5.2010 kl. 12:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldvin Björgvinsson

Höfundur

Baldvin Björgvinsson
Baldvin Björgvinsson

Framhaldsskólakennari. Raffræðingur. Skútusiglari.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • baldvinb launasedill 31des2021
  • heilgrima
  • halfgrima
  • ...jorgvinsson
  • frozenintimebanner.png

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband