Guðlaugur Þór gæti kynnt sér málið betur en spurningin er góð

Það vita það allir sem vilja vita að Drómi er nú þegar í eigu Seðlabankans, sem er reyndar lögbrot þar sem það er ekki hlutverk seðlabankans samkvæmt lögum að standa í fasteignabraski og innheimtu ólöglegra lána.

Full ástæða fyrir góðan fréttamann að kafa vel ofan í þetta mál.

Þess má geta að Sturla Jónsson og Toppstöðvargengið veit allt um þennan óþverragerning.


mbl.is Spurt um Dróma á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orsökin er

Ég tel reyndar orsökina oft vera vímuefna og steranotkun ökumanna og full ástæða til að tilkynna svona einstaklinga til lögreglu.
mbl.is Veittist að prófdómara í ökuprófi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er engin lausn

Það er vissulega leiðinlegur ósiður að míga allstaðar þar sem það er hægt í miðbænum.

Vandamálið er hins vegar óleyst. Það eru engin klósett.

Reykjavíkurborg verður að koma upp einhversskonar mígildum, pissustöndum, og kvenklósettum til að þjóna bjórlepjandi fólki og reyndar bara þeim sem eiga erindi um bæinn allan sólarhringinn.

Fólk bara verður að sinna þessari náttúrulegu þörf endrum og eins.

Það leysir ekkert vandamál að sekta fólk fyrir að pissa.

Vandamálið er ekki pissarinn heldur hreinlætistækja-skorturinn.


mbl.is Fimmtán kærðir fyrir þvaglát
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreyfingin er óvenjuleg stjórnmálahreyfing

Íslendingar eru auðvitað óvanir því að stjórnmálahreyfing taki afstöðu eftir málefnum.

Hreyfingin hefur neitað að taka þátt í sandkassaleiknum "með og á móti meirihlutanum".

Í siðmenntuðum löndum sem við berum okkur gjarnan saman við þekkist ekki neitt líkt því hverning íslensk stjórmál eru gjarnan stunduð.

Að taka afstöðu gegn hagsmunum almennings og gegn hagsmunum þjóðarinnar er eitthvað sem Hreyfingin mun ekki taka vísvitandi þátt í.

Að vera á móti bara til að vera á móti er ekkert annað en sandkassaleikur og bjánaskapur.

"Við höfum aldrei heitið ríkisstjórninni stuðningi gegn vantrausti en höfum stutt öll góð mál óháð uppruna þeirra."


mbl.is Munu verja ríkisstjórnina vantrausti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver borgar launin þín Gylfi?

Ert þú Gylfi að vinna fyrir þá sem borga þér launin?

Er þetta helsta baráttumál ASÍ nú rétt fyrir 1. maí?

Stjórnar LÍÚ þér orðið eins og svo mörgum öðrum?


mbl.is Strandveiðum verði hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannabis er ekki hættulaust (myndband)

Fyrir þá sem halda að kannabis sé algerlega hættulaust fyrirbæri þá er hér ágætur fyrirlestur sem allir áhugasamir ættu að kynna sér (40 mínútur) :

Andrés Magnússon geðlæknir á fíknideild geðdeildar Landsspítalans heldur fyrirlestur um áhrif kannabis. Fyrirlesturinn var haldinn þann 14. febrúar 2012 í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.

Fyrirlestur á forvarnadegi FB. http://youtu.be/6JCzZtCCcjQ


mbl.is Einblína á afnám refsistefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgaraleg óhlýðni

Stundum á  borgarlega óhlýðni við. Það er að hunsa vísvitandi lög sem eru einhvernvegin fáránlegt að fylgja eftir.

Það fylgir því reyndar að vera tilbúinn að taka afleiðingunum.

Ég leyfi mér að hvetja viðkomandi að hunsa fyrirmæli og halda sínu striki, það er oft það eina siðferðislega rétta og góð leið til að benda ákveðið og opinberlega á hvað er rétt og hvað er rangt.


mbl.is Banna tertur á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkun gjalda er engin lausn

Það sem þarf að gera er að stórbæta samgöngur með rafknúnum almenningssamgöngum. Rafknúnar lestar milli helstu staða. Til dæmis væri hægt að byrja á lest frá Mjódd niður í miðbæ með viðkomu við Kringluna.
mbl.is Vilja breytta bílamenningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverra hagsmuni er verið að verja?

Ég heyrði það eftir áreiðanlegum aðila, vélstjóra, að frásagnir af þessu séu vægast sagt yfirhylming.

Fljótlega hafi komið í ljós þegar verið var að sigla skipinu heim frá skipasmíðastöðinní í Chile að vélin var alls ekki í lagi.

Hún hafi hreinlega rifið sig lausa af festingunum og nánast verið komin á hliðina inni í vélarrúminu.

Skipið hefur bara siglt á annarri vélinni frá upphafi.

Í allri umfjöllun fjölmiðla hefur þetta verið kallað titringur sem er yfir þeim mörkum sem vélarframleiðandinn setur sér sjálfur.

Því spyr maður: Hverra hagsmuna er verið að gæta í fréttum af þessu? og Hvers vegna er ekki bara sagt satt? Er það orðinn svo viðtekin venja í þessu samfélagi sem við búum í að segja aldrei sannleikann heldur reyna alltaf að hylma yfir allt, að meira að segja í þessu tilfelli segja menn bara sjálfkrafa ósatt?

 


mbl.is Viðgerð á Þór kostar milljarð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Baldvin Björgvinsson

Höfundur

Baldvin Björgvinsson
Baldvin Björgvinsson

Framhaldsskólakennari. Raffræðingur. Skútusiglari.

Mars 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • baldvinb launasedill 31des2021
  • heilgrima
  • halfgrima
  • ...jorgvinsson
  • frozenintimebanner.png

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband