ICESLAVE Börnin bera ábyrgðina

ICESLAVE samningurinn gengur út á það að gera börnin okkar að ábyrgðarmönnum og greiðendum fjármálasukks og gæpastarfsemi nokkurra tuga einstaklinga.

Það er bara siðferðislega RANGT.

Það passar einmitt að þegar þau koma út á vinnumarkaðinn þá skulu þau byrja að borga af einhverju fáránlega háu láni sem var skrifað uppá af foreldrum þeirra.

Í ofanálag fékk sama siðspillta sjálftökuliðið nýja banka, nýja kennitölu og NÝJA RÍKISÁBYRGÐ. (Kúlulánaliðið verður að yfirgefa stjórnun bankanna.)

Nú berjast fjölskyldur landsins hreinlega fyrir lífi sínu og framtíð frammi fyrir blindum augum þingsins, skjaldborgin um heimilin er ekki einu sinni tjaldborg.

Þessir nokkrir tugir einstaklinga sem ábyrgðina bera ganga enn  lausir og spóka sig á lystisnekkjum og lúxusþotum.

Það eina sem við eigum sameiginlegt með þeim er að vera með eins vegabréf, því raunverulegir íslendingar eru þeir varla.

Þeir sem ábyrgðina bera og tóku ofurháar launagreiðslur fyrir það skulu bera ábyrgðina, ekki börnin okkar. Til þess þarf vilja breta og hollendinga til að sækja það fé sem er í þeirra lögsögu bæði innan lands hjá þeim og á aflandseyjum.

Það er enginn að segja að það eigi ekki að borga, það er aðferðin sem deilt er um.

 


mbl.is Nýju bankarnir bera byrðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Sammála.  Það er undarlegt hvað margir íslendingar virðast láta pólitískar skoðanir sínar ráða í þessu máli.  Ef Steingrímur snýst eins og vindhani þá snýst vinstra fólk og telur ekki vera annað í boði en að setja drápsklyfjar á saklaus börn.  Bendir á ábyrgð D og B sem er hverju mannsbarni augljós en telur það réttlæta það að VG og S skrifi undir afarsamninga fyrir þjóðina.

Magnús Sigurðsson, 10.6.2009 kl. 10:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Baldvin Björgvinsson

Höfundur

Baldvin Björgvinsson
Baldvin Björgvinsson

Framhaldsskólakennari. Raffræðingur. Skútusiglari.

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • baldvinb launasedill 31des2021
  • heilgrima
  • halfgrima
  • ...jorgvinsson
  • frozenintimebanner.png

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 14101

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband